Færsluflokkur: Bloggar

Óskapnaður 21 aldarinnar.

Til fræðslu er þessi þáttur mjög upplýsandi. http://www.aljazeera.com/programmes/slaverya21stcenturyevil/2011/10/2011103181116331622.html
Þarna koma margir illir hlutir í ljós.

Það átti að skipta.

Það verður spennandi að sjá hvernig Nubó gengur að kaupa land í ESB ríki? Það hefði átt að bjóða honum skipti. Jafnstórt hlutfal flatarmáls Íslands í skiptum furir jafnstórt hlutfall flatarmáls af Kína.
mbl.is Huang snýr sér til Finnlands og Svíþjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fulltrúinn féll.

Hvernig ætlar fólk að bregðast við þegar fulltrúi kínverskra stjórnvalda er hættur við. Fólk sá í hillingum lífið hér á landi á þegar kínverskt skotsilfur mundi flæða um landið.
mbl.is Huang Nubo er hættur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigja landið ekki selja það.

Sala á þessu landi er skekkja. Þapð á að finna leið til að leigja honum landið. Gera langtímaleigu, nokkra áratugi. En Ísland eigi landið áfram. Þetta sama hefði átt að gera í Mýrdalnum þegar Svisslendingnum var seldur Heiðardalurinn og fullt af fjalllendi.
Með þessum málum sést hversu mikilvægar þjóðlendukröfurnar voru. Hálendið var þá ekki lengur bitbein margra sem héldu sig eiga það.
mbl.is Óviss um stuðninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útfalli Jökulsár verður að breyta.

Það verður og það er hægt að stöðva þessa þróun. Það er hægt að gera með því að stífla núverandi útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi. Núverandi á yrði þá stífluð og útfallinu frá Breiðamerkurjökli veitt í annan farveg. Útfallinu ætti að veita í farveg Stemmu sem er skammt austan Jökulsár á Breiðamerkursandi.
Þá yrði gerð stífla í farveg Jökulsár á Breiðamerkursandi. Með henni er tilvalið að hækka örlítið vatnsyfirborð lónsins. Þá er hægt að koma í veg fyrir það að sjórinn sem er miklu heitari en jökulvatnið flæði inn í lónið og valdi aukinni bráðnun á jöklinum. Bráðnun sem veldue enn meiri stækkun lónsins. Svo mikilli stækkun að lónið verður fjörður inn að eða inn fyrir Esjufjöll.
Ef ekkert verður gert stækkar lónið og haftið sem er á sandinum á Breiðamerkursandi rofnar. Þá fer hringvegurinn þar í sundur.
En ef útfallið verður stíflað og því veitt í farveg Stemmu. Byggð ný brú þar yfir. Þá er öruggt að hringvegurinn verður áfram opinn.
mbl.is Jökulsárlón stækkar ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð Oddsson tryggði sigurinn.

Bjarni Benediktsson hafði dyggann stuðning fyrrverandi formanns flokksins. Davíð Oddsson sem er foringinn og öllu ræður sem hann vill og er ritstjóri flokksblaðsins hafði forsíðumynd af Bjarna fyrir helgina.
Það skiptir öllu að vera í réttu liði. Engeyingurinn hafði Davíð bak við sig í sýndarbaráttunni um formannssætið.
mbl.is Mín pólitíska framtíð óráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringvegurinn verður að haldast opinn.

Alveg er sama hvort Jökulsárlón í Breiðamerkursandi verður friðað eða ekki. Þar verður að finna og gera lausnir sem minnka bráðnun jökulsins. Lónið er núna í raun fjörður með sandrigi við útfallið. Blogg mitt frá í fyrradag má lesa hér: http://nhelgason.blog.is/blog/nhelgason/entry/1205740/
Jökulsárlón er í dag að mestu leyti sjór. Það finnst best á því að bragða á vatninu sem er í lóninu.
Ég hef sagt það nokkrum sinnum hvað ég tel að sé besta lausnin á Breiðamerkursandi. Að stífla núverandi útfall úr lóninu. Útfall þar sem sjórinn flæðir út og inn. Aðeins er spurning um það hvenær haftið sem er milli jökullónsins og svávarinas rofnar.
Til að koma í veg fyrir það er lausnin að loka núverandi útfalli úr Jökulsárlóni og færa það aðeins austar. Þar er farvegur Stemmu. Stemma var jökulá sem að stærstum hluta kom úr jökullóninu. Sá farvegur er anokkuð langur. Alla vega mun lengri en styðsta á landsins.
Með því að loka núverandi útfalli verður tryggt að hringvegurinn helst opinn. Því ef brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi fellur og jökullónið verður fjörður nær það inn að Esjufjöllum. Því er engin séns að ætla að leggja hringveginn inn fyrir lónið.
Vissulega verður að gera nýja brú yfir Jökulsá verði hún flutt í Stemmufarveginn. Það er þó vel fær leið. Leið sem tryggir að áfram verður vegur hringinn í kringum landið. Það verður að vera tryggt því í dag eru alli flutningar eftir þjóðvegunum. Óþarfi er að láta flutningana fara alla um norðurlandið. Aukning á mengun og mun lengri leið.
Þess vegna legg ég það til að skoðað verði strax með það að loka útfallinu úr Jölulsárlóni og færa útfallið austur í Stemmufarveginn.
mbl.is Jökulsárlón undir þjóðgarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stífla á útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi.

Á RUV er frétt um það hversu mikið jökullónið á Breiðamerkursandi hefur stækkað undanfarið. Og að það stækkar mikið á hverju ári vegna þess að sjórinn á greiða leið inn í það. Hér er RUV greinin: http://ruv.is/frett/jokulsarlon-rannsakad. Ég hef sagt það áður og endurtek það sem mér finnst að eigi að gera þarna austur frá. Mitt álit er að stífla eigi fyrir rennslið í Jökulsá. Láta hana hætta að renna til sjávar um þetta rif sem hún er að renna núna. Beina eigi útfalli Jökulsár í farveg sem er rétt austan við útfall Jökulsár. Beina rennsli hennar í farveg sem áin Stemma rann eitt sinn eftir. Nú er þar engin á lengur og brúin farin. Ef Jökulsá yrði veitt í þann farveg verður hún alllangt frá sjó. Flóðs og fjöru mundi ekki gæta lengur í jökullóninu. Með því mætti koma í veg fyrir stöðuga bráðnun Breiðamerkurjökuls og í leiðinni tryggja að hringvegurinn verði fær áfram. Því ef að sjórinn grefur sig í gegnum Breiðamerkursandinn mun fjörðurinn ná langt innundir Vatnajökul. Enginn möguleiki er á því að vegurinn muni geta legið inn fyrir hann. En ef Jökulsá verður stífluð og henni beint í Stemmufarveginn verður að byggja brú þar. Það er vel viðráðanlegt verk sem kemur þá í veg fyrir að hringvegurinn rofni og að fjörður myndist inn í Breiðamerkurlón.


Ótrúlegur leikmaður.

Að sjálfsögðu er sá besti sá besti í sögu Meistaradeildarinnar! Einhvers staðar sá ég grein um hann,frélagi í old boys. Old boys sem eru allt reyndir og góðir leikmenn. Í greininni var sagt að hann bæri af. Svo góður væri hann að hann ætti fullt erindi í að vera enn að spila.
mbl.is Zidane bestur í sögu Meistaradeildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 371204

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband