Færsluflokkur: Bloggar

Þar kom að því

Keðjurnar í skottið og skóflan tilbúin. Allir tilbúnir að ýta og ökumenn sýna vonandi hver öðrum þolinmæði.
mbl.is Varað við vonskuveðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan með símann.

Hún ætlar að streðast áfram í pólitíkinni, Sama hvað hún segir og gerir. Ekkert af því verður til að hún hætti afskiptum sínum. Álfheiður heldur áfram að tala til fólks en ekki við það.
mbl.is Álfheiður stefnir á 2. sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hornsteinn útrásar?

Ólafur Ragnar hefur líklega vonað að hann væri að leggja hornstein að nýju Íslandi. Útrásarvíkingar og sigurvegarar forsetans um allar jarðir.
mbl.is Lagði hornstein að Búðarhálsvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrðardagur.

Það var sælt og nokuð blautt að fara niður Skólavörðustíginn í dag. En kjötsúpan sem boðið var uppá á öllum stöðunum var hreint dásamleg. Ekki var um að ræða annað en að fara rólega niður götuna til að verða tilbúinn fyrir næsta skammt.
Það er dásamleg upplifun að fara á kjötsúpudaginn. Þetta var í fjórða skiptið sem ég fer niður götuna. Svo hittir maður líka fullt af fólki sem maður kannast við. Síðan er þetta svoleiðis að allir ræða saman á kjötsúpudeginum og eru hinir bestu vinir.
mbl.is Buðu upp á 1500 lítra af kjötsúpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gúlakið bíður

Tolokonnikova og Aklyokhina fara í Gúlakið til að taka út dóm sinn. Pútín og kónar hans vilja sýna þeim hvar Davíð keypti ölið
mbl.is Meðlimir Pussy Riot í vinnubúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Bjarnason og Bjarni Benediktsson dæmdir úr leik.

Eftir niðurstöðu ráðgefandi atkvæðagreiðslu verður Steingrímur að taka til í sínum ranni. Á Jón Bjarnason að verða innsti maður í flokknum eftir úrslitin. Jón er nú líkt og Bjarni Benediktsson búinn að dæma sig úr leik í íslenskum stórnmálum.
mbl.is Þjóðin tók tækifæri sitt alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæ bæ Bjarni.

Miðað við niðurstöðuna hefur Bjarni Benediktsson þann eina kost að hætta í íslenskri pólitík. Þetta er ósigur Bjarna eftir það sem hann hefur sagt.
mbl.is „Kjörsókn góð í svona kosningu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barátta gegn inngöngu

Helblátt félag sjálfstæðismanna nær ekki neikvæðri niðurstöðu í skoðanakönnun sem þau láta gera fyrir sig. Enn og aftur reyna þeir að berjast líkt og rjúpa við staur til að koma fólki til að styðja sína skoðun. Sjálfstæðisfólk vill hafna öllum breytingum á sameiginlegu bandalagi Evrópuþjóða.
Fólk talar um afsal þjóðveldisins. Ekkert bendir til annars en að Ísland mni halda öllum sínum réttindum. Þau yrðu líklega enn meiri við inngöngu í ESB því að þá verður Ísland hluti bandalagsins sem velur og hafnar lagasetningu. Annað en er í dag. Ísland tekur upp samþykkt lög og reglur ESB.
mbl.is Meirihluti á móti í meira en þrjú ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hausthreyfingar.

http://www.flickr.com/photos/njordur/5931323710/in/photostream  Haustskjálftarnir eru byrjaðir á Kötlusvæðinu. Þetta er háhitasvæði sem alltaf má reikna með að eitthvað gerist. 
mbl.is 3,2 stiga skjálfti í Kötlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð þeirra sem taka gjald af komu er mikil.

Rétt þykir mér að þeir landeigendur og umsjónarfólk sem vilja taka gjald af fólki sem vill heimsækja staðina sem rætt er um að innheimta aðkomugjald, hvað fylgir því að rukka af fólki. Álit mitt er það að gjaldtaka þýði það að svæðin verði kyrfilega merkt. Brúnir, gil og klettar girtir mannheldri girðingu.
Ég hef séð það fyrir mér að gjaldtaka á vinsæla ferðamannastaði verði nokkuð atvinnuskapandi, en ég get ímyndað mér miðað við fólksfjöldan sem kemur að Gullfossi ár hvert að þar verði að gæta þess vel að gestir fari sér ekki að voða.
Þetta sama sé ég fyrir mér að verði á Dyrhólaey. Fjöldi gesta kemur þangað ár hvert og gæta sín almennt vel. Á svona stóru svæði eins og Dyrhólaey er verður að gæta hverrar brúnar og allra leiða um Dyrhólaey, einnig uppgönguleiðir sem eru vestan á eynni.
Það er hreinaklárt að þegar er innheimt af gestum fyrir að fara á vinsæla staði eru þeir á ábyrgð þeirra sem taka frá þeim innheimtugjaldið. Ábyrgir fyrir því ef fólk slasast, ábyrgir fyrir því að leiðir séu vel merktar og greinilegar á kortum. Svona ábyrgð nær út fyrir gröf og dauða. Í hvaða tilgangi sem fólk fer á svona staði er koma fólks þangað á skýrri ábyrgð innheimtu aðilanna.
mbl.is Nauðsynlegt að hefja gjaldtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband