Færsluflokkur: Bloggar

Gott framtak.

Prýðisgott þegar fólk getur látið gott af sér leiða í svona áheitum. Mörg góð málefni eru studd með þessum hætti nú í Reykjavíkurmaraþoninu. Ég er ævinlega að koma MS félaginu að í áheitunum. Hér er ein síða stúlku sem ætlar að hlaupa og gengur vel að safna fyrir MS félaginu,
mbl.is Tíu milljónum verið heitið á hlaupara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur er góður!!

Ég hvet alla til þess að styðja þau félög sem eru á listanum. Hér er ein að safna fyrir MS félagið. Endilega styrkið framtak stúlkunnar.
mbl.is Hlaupið til góðs í maraþoni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALVEG TIL FYRIRMYNDAR.

Borgarstjórinn var virkilega flottur í gleðigöngunni. Vissulega geta margir reynt að finna eitthvað að hans karakter í göngunni en hann var til sóma og sýndi málstaðnum góðann stuðning.

Jón Gnarr var ein af drottningunum. Skoðið myndina.


mbl.is Segir að Jón hafi verið klæddur eins og gömul kona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söfnun undir jökli og í Reykjavíkurmaraþoni.

Þetta seinna jökulhlaup í Skaftá er eins og bólan sem aldrei sprakk. Katlarnir eru þó enn undir jöklinum og úr þeim hleypur fyrr eða síðar. Ágætt er að það hlaupi frá þeim með stuttu millibili. Hlaupin verða þá heldur minni.

Ég minni á Hlaupastyrkinn í Reykjavíkurmaraþoni. Hér er síða stúlku sem er að safna fyrir MS félagið.


mbl.is „Viljum ekki afskrifa hlaupið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi sport og spennandi þátttaka.

Fjölhæft sport til að taka þátt í. En hér er þátttakandi sem ætlar að hlaupa fyrir MS félagið í Reykjavíkurmaraþoninu.

Síðan hennar.


mbl.is Crossfit æði á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sama hvað er?

Það voru til peningar til að gera Héðinsfjarðargöngin. Litla Moskva á að vera út úr vegakerfinu áfram.
mbl.is Peningar fyrir göngum ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama og er hér á landi.

Þetta er álíka og launahækkunin á Íslandi sem samið var um í vor eða fyrr í sumar. Hún mun með sama áframhaldi þurrkast út í haust. Á meðan hækka allir hlutir og þeim hækkunum fylgir vísitöluhækkun sem síðan hækkar lánin sem mörg okkar eru með á íbúðarhúsum sínum.
mbl.is Hækkun ársins þurrkast út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhrif hlýnunar eru mikil.

Þetta er sama ástand á Snæfellsnesinu og verið hefur í Vík á svipuðum tíma. Jafnvel byrjaði óstandið á kríunum aðeins fyrr. Ástand sandsílastofnsins hefur fylgt með hlýnuninni á jörðinni. Global Warming. Með hlýnuninni hverfur sandsílið og aðrar tegundir koma. Flundran, sem er flatfiskur sem lifir bæði í sjó og fersku vatni er nú í öllum ósum og lækjum austan-, sunnan- og vestanlands. Hún er nú farin að koma fram á norðurlandinu. 

Þessi breyting á dýralífinu hefur mikil áhrif. Ekki bara krían fer. Lundaveiði í Vík og Vestmannaeyjum er engin núna. Enn er þó hægt að veiða fýlinn því nóg virðist vera af honum.


mbl.is Drepast úr hor áður en kríurnar fljúga burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heim strax!

Þeim hefur legið lífið á heim í litlu Moskvu. Það hefur verið viðbjóðslegt að sitja í bíl inni í göngunum í allri menguninni!
mbl.is Allt fast í Norðfjarðargöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 371209

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband