25.3.2009 | 16:40
Ágætt mál. En lýsing óþörf.
Ágætt að búið er að ákveða að breikka veginn. Mér finnst reyndar að 2+1 geri góða hluti. Með því móti er líklega hægt að breikka og bæta lengri kafla.
En ég hef ætíð verið fylgjandi 2+2 á Hellisheiðinni. Spurning hvort að ljósastaurar eru ekki óþarfir. Skapa falskt öryggi. Eru dýrir í uppsetningu, viðhaldi og rekstri
Breikkun kostar 15,9 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tek undir með þér varðandi tvöföldunina. En er ósammála skoðun þinni á lýsingu. Allt í lagi þetta gæti orðið dýrt en allt sem bætir sýn í blindbyl, þó ekki nema örlítið er plús. Það ætti t.d. að vera löngu búið að setja ljósastaura í þrengslin samkvæmt samningi milli Orkuveitunar og Sveitarfélagsins Ölfusar. Orkuveitan fékk að byggja heilt orkuver á landsvæði Ölfusar og hluti af samningnum var að lýsa upp þrengslin.
Garðar Jóhannsson, 25.3.2009 kl. 17:00
Ég sé mig tilneydann til að mótmæla lýsingu, þó ekki væri nema vegna rektrarkostnaðar, það er hér um bil óþekkt annarstaðar í Evrópu að eyða öðrum eins fjármunum í vegalýsingu og á Íslandi, samt kemst fólk leiðar sinnar. Það er ekki hægt að segja að lýsing skapi öryggi, því að ef það eina sem menn vantar til að komast á milli staða er betri vegalýsing, verða þeir að bíða eftir betra skyggni. Ef skyggnið er svona slæmt að menn komist ekki spönn frá rassi, er best fyrir þá, og aðra, að vera heima hjá sér. Lýsing þjóðvega skapar, að mínu áliti, falskt öryggi og það leiðir til þess að fólk sem á ekki erindi hvort sem er, á vegina, þvælist um í blindbyl og slæmu skyggni út í aðstæður sem það ræður ekki við.
Steinmar Gunnarsson, 25.3.2009 kl. 20:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.