12.12.2008 | 16:04
Gríðarlegur greiði?
Mikill greiði sem stjórnendur lífeyrissjóðanna gera. Mikil fórn að lækka 2.000.000 króna laun um 10%.
Fórnin mikla. Lífeyrissjóðirnir ættu að ganga fram og vera í stafni þess að verðtrygging verði afnumin á Íslandi. Það væri mesta bót sem hægt væri að gera fyrir þjóðina.
Laun stjórnenda LV lækkuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 370663
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lestu nú fréttina aftur. Forstóri sjóðsins var lækkaður um 25% í launum ekki 10%.
HJH (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 16:20
Ég hefði lækkað stjórann um meira, en hann fer í næsta kjöri engin sapurning með það
Guðrún (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 17:31
@ HJH. Ég er að tala um alment. Ekki kónginn á bauninni.
Njörður (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 18:13
Verðtrygging gerir það reyndar að verkum að lánskjör verða betri en ella. Réttara væri ef lífeyrissjóðirnir myndu berjast gegn þeirri ógnarverðbólgu sem verið hefur að éta upp sparifé fólks. Verðbólgu sem orðinn er til vegna gríðarlegrar aukningar ríkisútgjalda, stórframkvæmda á Austurlandi, tónlistar-og ráðstefnuhúss o.s.frv.
Væri ekki verðtrygging þá væru lánskjör mjög líklega með eftirfarandi hætti: ca. 15-18% byrjunarvextir með endurskoðunarákvæði á 5 ára fresti, fyrsta veðrétt að sjálfsögðu. Vextir yrðu aldrei þessi 4-5% sem gefin eru upp sem grunnvextir verðtryggðra lána.
Blahh (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 23:43
@Blahh Væri ekki betra ef vextir reiknuðust af greiðslum lánanna. Verðtryggingin legðist ekki á allt og hækkar eftirstöðvarnar frá gjalddaga til gjalddaga?
Gott væri að sjá höfuðstólinn lækka við hverja greiðslu. Vextirnir legðust á afborganir sem yrðu vissulega háar á verðbólgutímum. En verðtrygging mundi ekki gera eftirstöðvarnar himinháar og afborganir óviðráðanlegar.
NH (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 14:04
Einfalt, ef höfuðstóllinn hækkar ekki í takt við verðbólguna þurfa vextir að vera enn hærri til að bæta upp tapið OG áhættuna af verðbólgunni. Fólk á að berjast gegn VERÐBÓLGU ekki verðtryggingu.
Blahh (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 00:26
@Blahh Er ekki skárra að greiða tímabundið háa vexti af höfuðstólnum en að verðbætur hækki eftirstöðvar lánsins endalaust.
Mér þykir það betra að slá lánið lækka en að eftirstöðvarnar verði margfalt verðmæti eignarinnar.
Njörður (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 11:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.