27.1.2014 | 00:12
Veita verður affallinu í annan farveg.
Gríðarlegt hop Breiðamerkurjökuls er staðreynd sem sést vel á þessum myndum.
Jökullónið er í dag líkast firði enda hyldjúpt og vatnið í því brimsalt. Þessi mikla sjávarselta í lóninu stuðlar að aukinni bráðnun jökulsins og líklegt er að lónið nái fljótlega inn að Esjufjöllum.
Með framkvæmdum er hægt að koma í veg fyrir aukna bráðnun Breiðamerkurjökuls. Það er hægt að gera með því að stífla útfall Jökulsár á Breiðamerkursandi og veita ánni í farveg Stemmu sem er skammt austan Jökulsár. Hluti úr Jökullóninu rann eitt sinn í Stemmu svo að hæðarmunurinn er sáralítill.
Farvegur Stemmu er 2-3 kílómetra langur og sjór mun hætta að streyma í jökullónið svo draga mun úr bráðnun Breiðamerkurjökuls. Í Stemmu hefur ekki verið jökulá í nokkur ár og brúin yfir hana var fjarlægð.
Með nýrri brú á nýjum stað mun hringvegurinn verða áfram fær.
Miklar landslagsbreytingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 370663
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.