Sjálfstæðisflokkurinn vill halda í verðlausa krónu.

Bjarnatetur og sá hluti sjálfstæðisflokksins sem styður hann og Davíð Oddsson vilja að sjálfsögðu ekki banna verðtrygginguna. Hagsmunir atvinnurekenda eru svo bundnir henni, að ASÍ stendur með þeim í því að halda í verðtryggingu.

Sjálfstæðismenn vilja ekki nefna afnám verðtryggingarinnar á meðan þeir dýrka og dá íslenska krónu sem er múlbinding verðtryggingarinnar. Þeir vilja ekki horfast í augu við það að nýr gjaldmiðill heimsálfunnar þýðir að verðtrygging verður fyrir bí. 


mbl.is Engin lausn að banna verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er algjör misskilningur að halda að evran hafi neitt með verðtrygginu að gera. Komdu með verðtryggt skuldabréf í ISK og ég skal sýna þér verðtryggt skuldabréf í EUR.

Það er leyfilegt að nota verðtryggingu í ESB, ekki bannað eins og hefur ranglega verið haldið fram. Það er bara bannað ef það er gert vitlaust, eins og á Íslandi. Skilurðu?

Guðmundur Ásgeirsson, 23.2.2013 kl. 00:20

2 Smámynd: Óskar

Guðmundur Ásgeirsson getur ekki skilið grundvallaratriði.  Í Evrópu er einfaldlega engin þörf á verðtryggingu vegna þess að þar er svo að segja engin verðbólga!  Ef hér væri ekki viðvarandi verðbólga vegna þess að við höfum handónýta mynt þá þyrftum við heldur enga verðtryggingu.  Lausnin er einföld en þjóðremba kemur í veg fyrir að fólk sjái hana.  Það kostar þessa þjóð tugi eða hundruð milljarða á ári að halda uppi handónýtri krónu.

Óskar, 23.2.2013 kl. 05:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 370368

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband