22.4.2012 | 16:54
Jákvætt á Dyrhólaey.
Það er virkilega ánægjulegt að þessar framkvæmdir séu á döfinni á Dyrhólaey. Bæði á Háey og Lágey. Verst er að ummerki mannanna verða eilíf í Afglapaskarðinu á Lágeynni.
En það er ánægjulegt að á Dyrhólaey geti fólk gengið örna sinna þegar þangað er komið annars staðar en bak við steinana. Dyrhólaey er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn á suðurlandi utan gullna hringsins.
En eitt vil ég fá að vita: Á að vernda áfram kolluna einu sem var í fyrra á Dyrhólaey eða á Dyrhólaey að verða öllum opin yfir sumarið?
En það er ánægjulegt að á Dyrhólaey geti fólk gengið örna sinna þegar þangað er komið annars staðar en bak við steinana. Dyrhólaey er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn á suðurlandi utan gullna hringsins.
En eitt vil ég fá að vita: Á að vernda áfram kolluna einu sem var í fyrra á Dyrhólaey eða á Dyrhólaey að verða öllum opin yfir sumarið?
Fimm milljónir króna í Dyrhólaey | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 370666
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Afglapaskarðið er hroðalegt lýti á þessum fallega stað og óskiljanlegt að þær framkvæmdir skuli hafa verið leifðar og þau mistök verða aldrei bætt, þarna á Lágeyjunni er allt annað landslag í dag heldur en var þegar við Njörður vorum að alast upp í Mýrdalnum.
Ég er ekki hrifin af að vera að hrófla við fallegum stöðum með byggingum og stígagerð en á fjölförnum stöðum verður víst ekki hjá því komist, án þess verða á endanum ennþá meiri skemmdir heldur en þær sem stígarnir valda.
Einar Steinsson, 22.4.2012 kl. 18:36
Ég man að þegar ég fór fyrst niður á Kirkjufjöru með móður minni var leiðin þangað niður farin á réttu falli á Skorpunefinu. Þá var ekki komið neitt Glópaskarð svo að fjaran var miklu minna sótt heim en nú er.
Njörður Helgason, 23.4.2012 kl. 12:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.