Rétt að útiloka Breivik.

Alveg er sama hver niðurstaða réttargeðlæknanna er. Breivik er gersamlega sturlaður og hefur bara eitt markmið: Drepa og verða þekkt nafn fyrir það.
Best væri það er fjölmiðlar sýndu samstöðu í því að halda honum sem mest frá sviðsljósinu. Það er akkúrat það sem hann vill. Þó að hann sé bak við lás og slá verður öll umfjöllun honum til auglýsingar.
Það er illt að eftirlifendur og aðstandendur fórnarlambana þurfi að horfa og heyra rödd Breiviks í útvarpi eða sjónvarpi. Fólk á ekki að þurfa að slökkva á honum þegar hann birtist.
Hann á að vera í sinni sellu. Vera þar án samneytis við þjóðina.
mbl.is Breivik ósakhæfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Auðvitað er maðurinn geðveikur, það getur ekki verið erfitt að skilja það. Svona voðaverk framkvæmir ekki heilbrigt fólk.

Hins vegar hefði verið fróðlegt að vita hverjir voru með honum í þessu. Það er nánast útilokað að hann hafi verið einn í þessu, miðað við allt sem fram hefur komið í fréttum.

Upplýsingar um það hefði verið fróðlegt og nauðsynlegt að sjá og heyra hjá honum í dómshúsinu, en það var lokað á fréttamenn og sjónvarpsútsendingu á síðustu stundu.

Einnig var þaggað niður í fólkinu sem fékk að vera viðstatt framhalds-úrskurðinn síðasta. Það fannst mér undarleg vinnubrögð. Hvernig skyldi það vera fyrir aðstandendur að vera skyldaðir til að þegja um þessa upplifun á einhverju stigi málsins? Það er eitthvað bogið við þetta dóms og upplýsingaferli allt.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.11.2011 kl. 12:39

2 Smámynd: Njörður Helgason

Erfitt á ég með að trúa því að hann hafi haft vitorðsmenn með sér í þessu máli. Hann var svo einbeittur í verkinu að ég held að hann hafi ekki treyst neinum til að vera með sér í þessum óskapnaði.

Verk hans minna mig á hegðun Hannibal Lecter. Einbeittur, eldklár og siðlaus.

Njörður Helgason, 29.11.2011 kl. 12:55

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Já, kannski er þetta mögulegt fyrir einn mann. Hannibal Lecter var skýr mynd um einbeittan, eldkláran og siðlausan mann, eins og þú segir.

Skýrasta dæmið um að Breivík hafi ekki verið einn að verki, var hvað það tók lögregluna langan tíma að komast til Útey. Það tók heilan klukkutíma, sem hefði ekki átt að taka meir en c.a 10 min. Og eins var stórundarlegt að ekki var notuð þyrla við björgunina. Það var óafsakanlegt með öllu. Það er ekki víst að Breivík viti sjálfur um það, ef einhverjir hafa verið að stýra honum inn á þessa öfgatrúar-voðabraut. Alvöru hvítflibba-siðblindu-glæpamenn kunna og hafa tök á að fela sporin sín.

Það er vitað að í mannsheilanum er partur tileinkaður trú af einhverju tagi, og það vita hvítflibba-ráðamenn heimsins. Þess vegna er svo nauðsynlegt að kenna börnum frá blautu barnsbeini, að trúa á náungakærleikann og það góða í veröldinni, og gæta þess að þau fái næga næringarríka fæðu. Stjórnvöld heimsins stýra, m.a. í gegnum skólakerfið, hvað börnum er kennt að trúa á. Skólayfirvöld leggja línurnar í þeim málum, og siðblindir græðgisjúkir menn stýra matvælamarkaðnum, með tilheyrandi alvarlegum afleiðingum eins og t.d. næringarskorti, offitu og fl. andlegum og líkamlegum sjúkdómum.

Hitler, Stalín og fl. siðblindir voðaverka-öfgamenn sögunnar trúðu á brenglaða mynd, sem illa innrættir ráða/valdamenn voru búnir að koma inn hjá þeim, og spiluðu svo á þessa öfgatrú þeirra.

Allar öfgar eru hættulegar.

Breivík hefur verið heilaþveginn og trúarþörf hans hefur verið stýrt inn á þessa voðabraut öfgatrúar. Það er enginn vafi á að Breivík er algjörlega siðlaus, og er það að mínu mati mjög alvarleg tegund af geðveiki. Siðblinda er víst ekki viðurkennd læknisfræðilega sem mjög alvarleg geðveiki, og það finnst mér stórundarleg fáfræði læknisfræðinnar, sem á víst að vera svo óskeikul.

Það er vitað að siðblinda stafar af efnaskorti, en það má ekki tala um það að neinu gagni opinberlega, svo ég veit ekki hvaða efni skortir. Hver heldur upplýsingum um þessar uppgötvanir leyndum, og hvers vegna? Hverra hagsmuni er verið að vernda með slíkri þöggun?

Heimsmafían er einbeitt, eldklár og siðlaus. Semsagt alvarlega geðveik. Siðblinda er í raun alvarlegasta geðveiki sem til er, og hefur tekið fleiri mannslíf en nokkur annar sjúkdómur.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.11.2011 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 370370

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband