Ró í bili.

Greinilega er að draga úr hreyfingunum neðanjarðar líkt og oft hefur gerst áður. Vissara er samt að fylgjast með Eyjafjallajökli og Goðabungu. Það er aldei að vita upp á hverju þessar eldstöðvar geta tekið.

Það er líka löngu kominn tími á að bryddi á Barða.


mbl.is Dregur úr skjálftavirkni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Helgason

Hér fylgir svo þjóðsagan um Kötlu:

"Það bar við eitthvört sinn á Þykkvabæjarklaustri eftir að það var orðið múnkasetur að ábóti sem þar bjó hélt þar matselju eina er Katla hét. Hún var forn í skapi, og átti hún brók þá sem hafði þá náttúru að hvör sem í hana fór þreyttist aldrei á hlaupum. Brúkaði Katla brók þessa í viðlögum. Stóð mörgum ótti af fjölkynngi hennar og skaplyndi og jafnvel ábóta sjálfum. Þar á staðnum var sauðamaður er Barði hét. Mátti hann oft líða harðar átölur af Kötlu ef nokkuð vantaði af fénu þegar hann smalaði. Eitt sinn um haust fór ábóti í veislu og matselja með honum, og skyldi Barði hafa rekið heim allt féð er þau kæmu heim. Fann nú ei smalamaður féð sem skyldi. Tekur hann því það ráð að hann fer í brók Kötlu , hleypur síðan sem af tekur og finnur allt féð. Þegar Katla kemur heim verður hún brátt þess vís að Barði hefur tekið brók hennar. Tekur hún því Barða leynilega og kæfir hann í sýrukeri því er að fornum sið stóð í karldyrum og lætur hann þar liggja. Vissi enginn hvað af honum varð, en eftir sem leið á veturinn og sýran fór að þrotna í kerinu heyrði fólk þessi orð til hennar: "Senn bryddir á Barða". En þá hún gat nærri að vonska hennar mundi upp komast og gjöld þau er við lágu. Tekur hún brók sína, hleypur út úr klaustrinu og stefnir norðvestur til jökulsins og steypir sér þar ofan í að menn héldu, því hún sást hvörgi framar. Brá þá svo við að rétt þar eftir kom hlaup úr jöklinum er helst stefndi á klaustrið og Álftaverið. Komst þá sá trúnaður á að fjölkynngi hennar hefði valdið þessu. Var gjáin þaðan í frá nefnd Kötlugjá og plássið, sem þetta hlaup helst foreyddi, Kötlusandur"

Njörður Helgason, 7.3.2010 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband