Það vorar snemma undir Eyjafjöllum.

Enn og aftur verða náttúruhamfarir á óskatíma. ahvað um jarðskjálftana árið 2000 og aftur 2008? Þá skalf jörð á þeim tíma ársins, að fólk hefði ekki getað óskað sér æskilegri tíma fyrir náttúruhamfarir.

Nú leggst aska yfir Eyfellskar grundir rétt áður en gróður fer í gang. Þegar allt lifnar við eru grösin fljót að spretta upp úr gjóskunni. Undir Eyjafjöllum vorar snemma.

Líklega verður heyfengur Eyfellinga þar sem askan er þykk, mengaður af gosefnum þetta árið. Bændur geta plægt túnin og ræktað þau. Helst er að sá fljótsprottnu. Grænfóðri eða öðru sem kemur strax upp og hægt er að beita á.

Hætt er við að allmargir bændur undir fjöllunum verði að kaupa hey úr sveitum þar sem öskufall leggst ekki yfir túnin. Þeir fá væntanlega aðstoð yfirvalda við þau kaup.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 370362

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband