19.11.2009 | 12:19
Rétturinn á mokstri er ótvíræður.
Vegna veðurbreytinga hefur ófærðar og lokunardögum á þjóðvegum landsins stórfækkað undanfarin ár. Samt á að skera niður Láta umferðaröryggið lönd og leið.
Vegfarendur treysta nú orðið á snjómokstur og hálkueyðingu á vegum úti. Vegfarendur verða að spóla í huganum mörg ár aftur í tímann.
Það verður að taka aftur fram sleða og skíði þessa fáu ófærðardaga. Þegar ég var í skóla á Selfossi fyrir allmörgum árum var Hellisheiðin lokuð vikum saman. Á Mýrdalssandi var floti af jarðýtum að berjast við snjóinn. Mjólkinni varð að safna saman í sveitinni á brúsa og aka í veg fyrir mjólkurbílinn. Það voru kenndir örfáir dagar í sumum mánuðum í gamla sveitarskólanum mínum. Það var kannski ekki slæmt, en þó.
Bæði eru vegabætur og fltningar veganna sem hjálpa. En fólk á rétt á því að vegunum sé haldið færum.
Eða er kannski besta lausnin að allir flytji á mölina?
Dregið úr vetrarþjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hver veit hversu mikið snjóar í vetur? Alla vega ekki fjárlaganefnd.
Haraldur Bjarnason, 19.11.2009 kl. 13:16
@ Haraldur vissulega ekki. Ég veit ekki hvort ráðamenn eru farnir að treysta á breytingu veðurfarsins. Það er á engan hátt verjandi að brjóta niður vetrarþjónustu utan fjölfönustu leiðanna.
Njörður Helgason, 19.11.2009 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.