28.5.2009 | 21:19
Hækkanir fyrir skjaldborg um heimilin.
Þetta er það þarfasta. Hækka möguleika fólks á eðlilegu lífi. Það er nýbúið að hækka áfengi umtalsvert. Hækkunin hefur það í för með sér að smygl til landsins hefur stóraukist og menn og konur fara að drekka alls kyns óáran. "Réttu mér kardemommudropana vinur"
Nú hefur eina leiðin fyrir fjölmarga í sumar að ferðast innanlands. Utanlandsferðirnar og gjaldeyrinn er orðin svo dýr að fólk hikar við að ferðast erlendis. Því hefur stefnan verið sett á að ferðast innanlands í sumar. Nú er búið að setja fólki stólinn fyrir dyr í þeim áætlunum.
Þetta ásamt öðru hækkar líka verðbólguna og þar með vísitöluna á lánum okkar.
Þetta er skjaldborgin um heimilin sem lenska er að talaum hjá ráðamönnum og konum.
Álögur á eldsneyti og áfengi hækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svo þetta er ástæðan fyrir öllum þessum sprotafyrirtækjum.... Já...
Ásgrímur Hartmannsson, 29.5.2009 kl. 13:13
Hvar Jóhanna skjöld ? Steingrímur verður að ná í pening íhaldið sá fyrir því. Hvar á hann að ná í aur ? svo velferðin verði ekki fyrir bí ekki hleypir Jóhanna honum að því.
Þetta á bara eftir að versna þökkum fyrir að Bjarni og Sigmundur D skulu ekki vera við völd peninga mafían N1 og kögun.
hann, 29.5.2009 kl. 17:03
Mér líst vel á tillögu Framsóknar og sjálfstæðismanna.
Tillaga þessarar ríkisstjórnarnefnu sem nú er við völd virðist stefna að því að allt eigi að gleypa og meta síðan útkomuna.
Við vitum hvað er um að ræða ef gleypt er. Það verður að bíða við rassgatið til að sjá hvort að ormar séu í skítnum.
Njörður Helgason, 29.5.2009 kl. 18:50
Svei þér nú dæmalausum búinn að gleyma
B má bíða? D þarf að svíða? Manstu allt sem þú hefur sagt um þessi a))))))))) Nei þökk sé landinu okkar harðbýla. Vonandi verða þeir alltaf lítil börn
hann, 29.5.2009 kl. 20:42
Svona verður þróunin við að hlusta meir á fulltrúa þesara flokka.
Njörður Helgason, 30.5.2009 kl. 10:49
Þó lífið sé svalt er það ekki falt NH
aurarnir þeirra er allt sem þarf að muna
einfallt.
hann, 30.5.2009 kl. 23:20
@ hannhvaða utar? Framlög Jóns Ásgeirs og Björgúlfsfeðga ti Skammfylkingarinnar?
Njörður Helgason, 31.5.2009 kl. 16:46
Þeir eru ekki á Alþingi vælandi aurasálir um sérhagsmuni sína. Alltof margir sjá ekki muninn á þessu tvennu og falla flatir fyrir hræsni.
hann, 31.5.2009 kl. 23:26
@hann það er svo gaman að hlusta á fulltrúa Framsóknar. Þeir tala skýruru máli og taka það fyrir sem máli skipti. Því miður á það ekki við um fulltrúa Samfylkingar VG telst ekki með. VG léttabátur Samfylkingarinnar.
Njörður Helgason, 1.6.2009 kl. 11:19
Hvað er gaman við fallsspámenn sem þú veist að þeir eru ? ertu nokkuð farinn að trúa trúa trúa ( Bubbi)
Léttabátar eru nauðsinlegir, geta verið eins og doríur, eða kanski þungir og klunnalegit nótabátar með sköllóttann nótabassa.
hann, 1.6.2009 kl. 22:49
SF og VG fara að verða eins og trollin sem Guðmundur Kærnested klippti aftan úr Bresku togurunum í þorskastríðinu.
Til einskis gagns liggjandi á hafsbotni.
Njörður Helgason, 2.6.2009 kl. 16:47
Það voru líka drauganetatrossur Vg liggjandi marfladar og veiða í áraraðir
SF er frjálst þar meiga menn hafa skoðanir.
Úr bókinni þorpsskáldið sem Magnús Bjarnfreðsson tók saman um
Jón úr vör
Bls 68.
En þar vitnar Jón úr Vör í skólastjórann í Brunnsvík
Hér í Brunnsvík finnst eingin “ein og sönn trú” , eingin ævarandi, fullkomin “sannindi”.
Hér skal vera hugsanafrelsi, málfrelsi, efagirni, gagnrýni.
Hingað eru allir velkomnir með hverja trú sem er, hvaða skoðanir sem er, einungis ekki þeir sem telja sig vita allan sannleika. Við kærum okkur ekki um gallalaust fólk, ekki um hina rétt þenkjandi. Hinir “gallalausu” hafa nefnilega einn lítinn brest, þann að eiga ekkert að vinna. Þeir slökkva kannski sjaldnast á götuluktunum, en tendra ekki heldur nein ljós sem lýsa og verma.
hann, 2.6.2009 kl. 23:40
Ég held að Samfylkingin sé komin í lið með Sea shepard. Alla vega miðað við sólóferð Öskurar Skarpéðinssonar til að vinna máli lið sem ekki er búið að samþykkja. Þeas. Inngönguviðræður í EB.
EB draumurinn er enn meira úti eftir þetta frumhlaup Össurar.
Njörður Helgason, 3.6.2009 kl. 17:48
Hver má og hvað má ? Við þorum þó að byrja og spyrja. Annað en aumingja greyin sem hjala bara og tala. Passaðu þig bara nú fer hríðin að byrja.
Hvort ertu framsókn eða íhald næturgagn eða ýsa ?
hann, 3.6.2009 kl. 22:01
Mér fannst Tryggvi Þór Herbertsson fínn í dag.
Njörður Helgason, 4.6.2009 kl. 17:49
Hversvegna?
hann, 4.6.2009 kl. 21:29
Tryggvi er klár og talar máli sem er skiljanlegt. Kemur beint að eninu og fylgir málinu eftir.
Njörður Helgason, 4.6.2009 kl. 22:05
Hvenær ? Hann hefur alltaf verið misskilinn greyið
hann, 4.6.2009 kl. 22:45
Hann sýnir styrk sinn þegar hann og flokkur hans kemst í ríkisstjórn.
Njörður Helgason, 5.6.2009 kl. 17:48
Hvaða styrk? Greyið hann er útsmoginn
hann, 5.6.2009 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.