Jólin, jólin koma brátt. Kveðja og meira.

Enn eru að koma jól. Sífelt verður styttra á milli jólanna núorðið. Líkt og þau hafi verið fyrir nokkrum vikum. Jú víst hefur verið ljúft á árinu. Á myndasíðunni minni eru margar myndir fá ferðum ársins.Jólin. Mikið óskaplega var þessi tími og af öllum dögum aðfangadagurinn lengi að líða hér áður fyrr. Morguninn langur. Farið í fjós og gegningar. Loksins kom hádegi, eftir það var hægt að setjast niður og horfa á barnaefnið í sjónvarpinu. Framan af í svarthvítum kassa sem fékk merki útsendingar frá Reynisfjalli. Stundum ef veður var ekki gott var skuggi á myndinni.  Þegar leið að kvöldi var farið í fjósið. Minning mín í æsku um innhringingu jólanna er blöndum ilmi af fjósalykt. Eftir mjaltirnar var farið inn og eftir baðið hófust jólin. Eftir langa bið. Í dag er biðin styttri. Helst að hafa ofan af fyrir þeim sem yngri eru. Þægilegt með hjálp sjónvarpsins sem sendir út barnatímana lengur en þessa tvo tíma sem sent var út hér áður fyrr. Það var allt í góðu. Maður fór þá út og fann sér eitthvað að gera til að tíminn liði eitthvað.

En Gleðilega hátíð öll sömul. Vonandi verður jólahátíðin ykkur öllum hin lúfasta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það styttist óðfluga dagarnir, vikur, mánuðir milli jóla.  Ef fer sem horfir verða þau eins og samhangandi músastigi úr kreppappír herbergi úr herbergi fjósi í hús og hús úr húsi, kirkju úr kirkju í mosku, búð úr búð, vonandi milli trúarbragða, land úr landi fátæktin hverfi og friðurinn vari. Vaki eins og saklausa barnið undir tærri stjörnunni við fjárhúsið

Músastigar geta valdið miklu eins og hver og einn sem vill með opinn huga. Þegar aldurinn hefur náð vissu stigi kemur alltaf biðin endalausa eftir mat, kaffi og heimsóknum þá virðist allt ganga svo hægt. Birtan í augunum dvín,  vonin verður ekki eins augljós

Trúin kemur samt nær og nær friður færist yfir á endanum slokknar en um leið kviknar á ný vonar stjarna skær. Börnin og samskiptatæknin bera von um frið framtíðar.

sRh 

sRh (IP-tala skráð) 26.12.2008 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 370311

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband