15.12.2008 | 18:34
Tiltekt Ingibjargar að nýju.
Ingibjörg Sólrún er komin í verkin aftur. Líkt og þegar R-listinn þurfti undir hennar stjórn að moka út og koma málunum í lag í Reykjavík eftir of langa setu Davíðs Oddssonar í borgarstórastól. Þarf Ingibjörg Sólrún og hennar flokkur að hreinsa til í landsmálunum og laga brunna slóð Davíðs Oddssonar.
Ingibjörg: Orsökin liggur í ofsafrjálshyggjunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 370663
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er nú það. Það er nú mikið vatn runnið til sjávar síðan ISG. tók til eftir Davíð. Nú gæti maður sagt að árnar séu farnar að renna uppí móti. Því nú verður einhver að fara og taka til höndum í Samfylkingunni áður ISG. gengur endanlega frá henni.
Það er lítill tími til stefnu.
J.Þ.A (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 19:50
@J.Þ.A Hvað er að taka til í SF?
Ósamstaða hjá þingflokknum? Óvinsælustu ráðherrarnir? Víðtæk tenginginn í fjármálakerfi landsins? Hættur formaður sem situr í öruggu embætti en stjórnar samt flokknum?
Njörður Helgason, 15.12.2008 kl. 21:57
ég verð nú að viðurkenna að Íhaldið liggur nú ekki nærri mér til hjarta. Og þar á bæ gerast hlutir sem best eru faldir einhversstaðar í bakherbergjum í Valhöll.
Það sem fer mest fyrir brjóstið á mér að ISG: stendur ekki við töluð orð. Hún bara brosir og breiðara með degi hverjum. eftir fleiri skandala og sukk sem kemur á yfirborðið þá brosir bara ISG
Spurningin er? af hverju segir hún ekki af sér. Samfylkingin getur ekki fylgt eftir formanni sínum eftir ef hún ætlar áfram þennan götuslóða sem hún hefur valið sér.
J.Þ.A (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 23:25
Þjóðinni og flokknum er fyrir bestu að ISG verði áfram.
NH (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 07:25
NH !
Afhverju?
J.Þ.A (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 09:13
Til að leiða okkur rétta leið út úr ástandinu!
NH (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 10:10
ISG. er fyrst og fremst ekki forsætisráðherra, og verður vonandi aldrei. Hún verður aldrei fær um að leiða þjóðina úr neinum vanda.
Ef Samfylkingin hefði slitið stjórnarsamstarfinu þegar bankahrunið varð og augljóst var hvert stefndi, þá hefði ISG. og Samfylkingin unnið traust þjóðarinnar sem ekki er til staðar í dag. Hún á að segja af sér og gefa þjóðinni það í jólagjöf.
J.Þ.A (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 10:36
@J.Þ.A Hvern viltu? Geir áfram. Sigurð Kára, Adda Kidda Gau, Valgerði, Steingrím J
Þvílíkur hópur. Veldu.
Njörður Helgason, 16.12.2008 kl. 18:07
N.H. Ég vil ekkert af þessum vindhænum sem sitja á alþingi núna. Það er skömm að því að íslendingar skulu hafa valið þessa afburða fábjána á þing. Nei hvorki Geir eða Íngibjörg Sólrún hafa neitt til brunns að bera fram yfir venjulega eiginhagsmunapotara í pólitíkinni. Burt með þetta lið.
J.Þ.A (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 09:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.