13.5.2008 | 22:19
Veljum hreinan orkugjafa.
Hvaða lífsgæði rýrir virkjunin? Hvergerðingar eru almennt aldir upp í hveralyktinni. Hugsið ykkur Hvergerðsku börnin sem sofa í vögnum sínum út undir húsvegg í hveralyktinni sem liggur yfir bænum frá náttúrulegum hverum sem eru um allan bæinn.
Fróðlegt væri að vita hver er ríkjandi vindátt á svæðinu. Leggur vindinn yfir bæinn frá væntanlegu virkjunarhúsi.
Hvað er til hjá þeim sem vilja byggja jarðvarmavirkjanir sem getur minkað loftmengun frá þeim.
Ef það er á döfinni hjá OR að setja síu sem minnkar eða eyðir hveralyktinni, held ég að Náttúruverndarsamtökum Suðurlands. Sé ég ekkert því að vanbúnaði að samtökin lýsi yfir stuðningi við byggingu jarðvarmavirkjunar. Sem framleiðir rafmagn sem framleitt er með jafnhreinum orkugjafa og jarðvarminn er.
NSS leggjast gegn áformum um Bitruvirkjun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Veljum Kjarnorku... hreina verður það ekki
Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 13.5.2008 kl. 22:34
Hversu hreinn er sá orkugjafi sem nýttur er einungis 12-13% og restinni dælt ofan í jörð aftur ónýttum. Hveraliktin í Hveragerði sem hlýst af brennisteinssamböndum er um 1100 sinnum minni en áætluð er úr fyrirhuguðum virkjunaráformum við Bitru og Ölkelduháls. OR lofar að hreinsa brennisteinssambönd úr fyrirhugaðri virkjun en af hverju ekki strax í Hellisheiðarvirkjun....tæknin er ekki til staðar! Skora á alla að kynna sér málið málefnalega og spyrja sig hvaða rök eru með og á móti!
Anton Tómasson (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 22:45
Heill og sæll Njörður. Þér er hér með boðið í heimsókn kaffi og kex.
Síðan í göngutúr um bæinn okkar og upp á upp í Djúpagil, Reykjadal og Ölkelduháls.
Náttúrulegt bað er á leiðinni. Þessir dalir eru í norður frá mér.
Manstu ekki hvar ég á heim ?? Mig minnir að þú hafir hlaupið þessar leiðir en sennilega bara notið hlaupsins og gleymt náttúrubarninu í þér.
Þinn vinur Ármann Ægir
Armann Ægir (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 10:54
Já þetta var fín hlaupaleið. Fór með Fífunum http://fifur.blogspot.com/
Þakka gott boð. Fer vonandi fljótlega alla leið austur yfir fjall.
NJÖRÐUR (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 10:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.