5.5.2016 | 10:41
Besti kosturinn er Guðni Th.
Barátta Guðna Th. hefst í dag með fundi í Salnum í Kópavogi. Með honum hefst formleg barátta Guðna fyrir embætti forseta Íslands.
Með framboði Guðna eiga Íslendingar góðann kost á manni sem ljúft er að kjósa til embættis forseta Íslands. Við höfum ekki haft betri kost síðan við kusum Vigdísi!
Ólafur með 45% en Guðni 38% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.5.2016 kl. 16:37
Ef fólk er ánægt með aðal stefnumál Samfylkingarinar að ganga í ESB, þá er Guðni Th. bezti kosturinn.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 5.5.2016 kl. 17:41
Æ góði besti Jóhann, hættu þessu endalausa bulli um Samfylkinguna, hún er ekki í framboði til forsesta, hvað þá ESB.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.5.2016 kl. 19:46
Ég veit að það er sárt að heyra sannleikan.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 6.5.2016 kl. 16:20
Mér er ekkert sárt um Samfylkinguna, hef aldrei og mun aldrei kjósa þann flokk. Mér finnst bara að hér sé ekkert ESB dæmi á ferðinni með Guðna Th. En ég er frekar hugsandi yfir því hvað Samfylkingin hefur gert mikinn skaða meðal fólks. Þeir ættu að hugsa sinn gang og vinda ofan af þessum asnaskap. Reyndar hafa bæði Össur, Jón Baldvin og Árni Páll talað um það að þetta hefðu verið mistök.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.5.2016 kl. 17:27
Bara skoða leikfléttuna, mér skilst að Jón Baldvin hafi verið í salnum þegar Guðni Th. lýsti yfir framboði sínu.
Þar sem er reykur er yfirleitt eldur, Jón Baldvin var kennari minn í gagnfræðaskóla og ég þekki refinn sem er yfirleitt í sauðagæru.
Hreinlega treysti ekki þessum mönnum fyrir að verja fullveldi Íslands.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 6.5.2016 kl. 18:06
Jón Baldvið hefur lýst því yfir að það sé ekki tilefni til að fara inn í ESB.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.5.2016 kl. 18:37
VG lýsti því yfir 2009 að þeir myndu aldrei samþykkja að ganga í ESB, en við vitum annað.
þess vegna þarf öryggisventil og það er ekkert annað en forsetaembættið sem kemur til greina. Og það sem ég hef heyrt um Guðna Th. þá er hann enginn öryggisventill í ESB malefni.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 6.5.2016 kl. 21:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.