17.4.2015 | 22:01
Lítið mengandi samgönguleiðir
Enn og aftur er stefna Reykjavíkur á að byggja upp samgöngukerfi sem mengar lítið. Svipað eins og byggð var upp hitaveita í Reykjavík og komið í veg fyrir mengun af því að brenna olíu eða kolum til að hita upp húsin í bænum.
Skorsteinana má sjá á ekki mjög gömlum húsum. Sótarar var starfgrein í Reykjavík og á tímum kolanna var kolaportið notað til að taka ámóti kolum sem var skipað upp í Reykjavík. Með hitaveitunni og rafmagnsframleiðslu Reykvíkinga hefur borgin orðið sér og nágrannasveitarfélögunum öflug í orkuframleiðslu.
Það er vonandi að Reykjavík og Vegagerðin sameinist um uppbyggingu rafmagnslesta á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðum. Lestarkerfi mun koma til með að verða mikilvæg í samgöngum frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur og styður við enn frekari uppbyggingu flugvallar fyrir allt landið á Miðnesheiði.
Léttlestir og hraðvagnar á dagskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll.
Er ekki mikið einfaldara og ódýrara að vera með rafmagnsstrætó? Hvort sem hann er með loftlínu eða ekki? Tvöfaldur ávinningur, götunum haldið við og rafvæddar samgöngur.
kv
Sindri
Sindri Karl Sigurðsson, 17.4.2015 kl. 23:56
Ég tel að áhrifamest væri, að ryksuga aðal göturnar á nóttinni.
Ég vann hjá hernum fyrir ótal árum. Þegar ísglæra myndaðist á flugbrautunum þá var dreift volgum sandi sem bræddi sig í glæruna og fraus föst. Þegar þiðnaði mátti sandurinn ekki vera á brautunum vegna hættu á að hann færi í hreyfla flugvélana. Þá ók trukkur með ryksugu á pallinum (mikið tæki) um og hreinsaði sandinn algjörlega af. Það er óþarfi að væla árum saman. Það þarf að taka á málunum. En vandinn er, höfuðborgarbúar væla mikið.
Snorri Hansson, 18.4.2015 kl. 04:24
Það er sannarlega hressandi og upplífgandi að lesa jákvæðar og skynsamlegar tillögur, en þar vitna ég auðvitað til athugasemdar Sindra Karls Sigurðssonar.
Jónatan Karlsson, 18.4.2015 kl. 10:43
Sammála þér Sindri, rafmagnsstrætó og rafmagnslest er málið!
Njörður Helgason, 20.4.2015 kl. 08:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.