Jökulsárbrýrnar á suðurlandi verður þegar að bæta!

Einbreið brú á ekki heima á þjóðvegi eitt lengur, átak hefur verið gert í því að gera brýrnar tvíbreiðar sem gerir einstakar einbreiðar brýr hættulegar. Brúin sem er yfir Jökulsá á Sólheimasandi er ein af tveim einbreiðum brúin á öllu suðurlandinu og aðkoman að henni er slæm. Að vestanverðu liggur vegurinn yfir Skógasand og rétt áður en komið er að brúnni er hæð á veginum sem gerir hann blindan.

Þegar slysið gerðist var flughálka á veginum svo að hann hefur verið enn hættulegri en eðlilegt er. Þetta óhapp segir skýrt að gera verður átak í að gera tvíbreiða brú yfir Jökulsá eins fljótt og hægt er.

Með auknum ferðamannastraum um landið eru brýr eins og þær sem eru yfir Jökulsá á Sólheimasandi og Breiðamerkursandi brýr sem verður að bæta!  


mbl.is Árekstur á einbreiðri brú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Helgason

BREIÐAMERKURJÖKULL hefur breyst gríðarlega á síðustu öld. Framundir 1920 eða lengur lá jökullinn frammi á ruðningunum sem eru í dag við suðurjaðar jökullónsins. Jökullinn hefur því hopað gríðarlega síðustu tæpa öldina. Fram að þeim tíma var helst farið yfir Breiðamerkurjökul milli Öræfa og sveitanna austanvið yfir jökulinn. Farin hættuleg leið yfir hann frekar en að öslast yfir jökulár sem flæmdust fram og til baka á Breiðamerkursandinum.

Eftir að jökullinn hopaði fór mestur hluti vatnsins sem frá honum rann í farveg Jökulsár á Breiðamerkursandi. Ein vatnsmesta á landsins en jafnframt sú stysta. Lítill hluti afrennslis úr Breiðamerkurlóni rann í ána Stemmu sem er nokkuð austan við Jökulsá

Breytingar á Jökulsá á Breiðamerkursandi

Á Jökulsá hafa orðið talsverðar breytingar síðustu árin. Ég var að vinna við viðgerð brúarinnar yfir Jökulsá sumarið 1984. Þá var áin miklu lygnari er hún er í dag. Hún hefur líka styst töluvert vegna landrofs. Sjórinn grefur sífellt meira úr fjörunni. Vegna þess að lónið er í sömu hæð og sjórinn gætir nokkuð munar flóðs og fjöru í því. Því grefur einnig úr jöðrum lónsins sjálfs. Lónið er hyldjúpt sem sést best á því að 1/10 ísjakanna sem á því eru stendur upp úr vatninu sem er allt að 100 metra djúpt.

Nú á síðustu árum hefur Breiðamerkurjökull hopað líkt og flestir jöklar landsins. Þetta ásamt því hvað sjórinn brýtur af ströndinni fyrir sunnan jökulinn hefur vakið áhyggjur af stöðu vegarins yfir sandinn. Vegur yfir Breiðamerkursand sem var lokið með byggingu brúarinnar yfir Jökulsá 1967. Það hafa verið gerðar tilraunir með að setja grjót í farveg Jökulsár til að minnka straum upp og niður ána. Aðgerðir sem hafa skilað einhverju en náttúran fer sínar eigin leiðir

Sýnt er þó að jökullinn hopi og nánast hverfi. Mun Jökullónið halda áfram að myndast framan við hann. Það nær langt inn undir jökulinn. Það er því engin von til að vegurinn geti flust inn fyrir jökulinn.

Lausn á keppninni við náttúruna

Mín hugmynd og tillaga að úrbótum á Breiðamerkursandinum er sú að farvegur Jökulsár verði stíflaður. Ekkert vatn renni eftir honum til sjávar. Heldur verði ánni sem nú rennur um farveg Jökulsár veitt í farveg Stemmu, sem hefur verið þurr síðustu 20 árin. Farvegur Stemmu er mun lengri og því ekki í sýnni hættu á að verða hafi að bráð.

Þetta þýðir að gera verður nýja brú yfir Stemmu. Sú gamla hefur verið rifin. Enda þarf mun lengri brú yfir ána en sú gamla var. Með þessu bjargast veglínan í austur og lónið verður áfram með því móti sem það er í dag. Ekki fjörður inn í landið. Eða það þarf að gera gríðarlega kostnaðarsamar viðgerðir og úrbætur á brúnni og veginum.

Ég er viss um að með því að fara þá leið að flytja Jökulsá yfir í farveg Stemmunnar megi gera úrbætur á veginum yfir Breiðamerkursand sem verða til framtíðar.

Njörður Helgason, 12.1.2014 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 370311

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband