17.6.2010 | 21:32
Stærsti sigur Íslendinga frá 1944.
Í dag var gott veður, dagurinn var góður nema í sumum leikjum HM. En að Evrópusambandið skuli hafa samþykkt að ganga til viðræðna við Ísland er einn stærsti sigur íslenskrar þjóðar frá fullveldi Íslands.
Ísland er þá viðurkennt ríki á Evrópuvísu og með þessu getur Ísland gengið til viðræðna við Evrópusambandið um að Ísland verði fullgilt ríki í Evrópusambandinu með sæmd!
Heilladagur fyrir Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert að grínast er það ekki?
Guðmundur St Ragnarsson, 17.6.2010 kl. 22:45
Jújú Guðmundur þetta er spaugari.
Axel Guðmundsson, 17.6.2010 kl. 23:05
Hjúkk! Það hlaut að vera....
Garðar Valur Hallfreðsson, 17.6.2010 kl. 23:17
Eða að niðurstaða EB sé svo ánægjuleg að hún sé gríni fremri.
Njörður Helgason, 17.6.2010 kl. 23:33
Við verðum að losna undan þessari ógnarstjórn!
Sigurður Haraldsson, 18.6.2010 kl. 03:41
Ef þér finnst það vera sigur ykkar þessa fylgislitla minnihluta ESB sinna á Íslandi að valta yfir og taka ekkert tillit til eindreginna óska okkar 70,3% þjóðarinnar sem vill kalla þessa ESB umsókn til baka tafarlaust.
Þá er það auðvitað stórsigur þegar svona fylgislausum minnihluta tekst að hafa sitt fram gegn svona afgerandi meirihluta heillar þjóðar.
En ykkur á eftir að hefnast fyrir þennan hroka ykkar og yfirlæti.
Sá hlær best sem síðast hlær.
Gunnlaugur I., 18.6.2010 kl. 07:53
Það er ekkert um annað að ræða en að láta ljós sitt skína í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn.
Ljós þeirra sem eru í dag andstæðingar aðildar fölnar örugglega þegar innihald aðildarsamningsins kemur í ljós.
Njörður Helgason, 18.6.2010 kl. 10:16
Njörður vilt þú ganga hálfur inn í ESB?
Sigurður Haraldsson, 21.6.2010 kl. 01:46
Njörður þó leitt sé þá spyr ég ertu með fulle femm?
Eiríkur Harðarson, 23.6.2010 kl. 03:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.