7.5.2010 | 20:32
Besti flokkurinn er góður kostur.
Það er góður gustur sem Besti flokkurinn færir inn í stjórnmálin í höfuðborginni. Mér líst mikið vel á þá sem eru í efstu sætunum og reyndar allann listann. Þetta er fólk á breiðum aldri með margvíslega reynslu. Ég er viss um að Besti flokkurinn er gott val fyrir íbúa höfuðborgarinnar.
Það er afskaplega gaman að vita hvernig þeir sem telja sig reynda stjórnmálamenn hamast í Besta flokknum og frambjóðendum hans. Ólína Þorvarðardóttir gerði stórt upp á bak í máli sínu á Pressunni. Frambjóðendur og gildir limir hinna flokkanna sem sitja í borgarstjórn eru með svipaðan málflutning.
Þessi málflutningur fulltrúa stjórnmálaflokkanna lýsir best hræðstu og varnarbaráttu fyrir stólum.
Ég trúi því að fólk sé búið að fá yfir sig nóg af íslensku stjórnmálaflokkunum sem rembast eins og rjúpan við staurinn og ná ekki frekar en hún nokkrum árangri.
Besti flokkurinn kynnir lista sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að þú sjáir tækifæri í að styðja þennann spéflokk, en ég hef miklar áhyggjur af landanum ef þetta er það sem þeir vilja kjósa yfir sig! er ekki nóg að búið sé að niðurlægja okkur á heimsvísu og rakka niður stjórnunarhæfileika þjóðarinnar, og fá þá næstu bylgju yfir sig um að þjóðinn kjósi grínistaflokk yfir sig??? Hvar á að draga mörkin?
Guðmundur Júlíusson, 7.5.2010 kl. 20:59
Ég held að þetta fólk sem hefur atvinnu af því að leika, spila í hljómsveitum, koma fram í margmenni og hafa fólk flott til þess að koma fram sé miklu betri kostur en fulltrúar úreltra stjórnmálaflokka.
Njörður Helgason, 7.5.2010 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.