Færsluflokkur: Dægurmál

Vopnin verði kvödd.

Hvernig var vikan? Hún var fín, svoldið sundurslitinn. Erfitt að ná áttun þegar frídagur er í miðri viku. Annars ekkert nema gott við það. Gott að geta vaknað um morgun snúið sér í rétta átt og sofnað aftur. Næsta vika er einnig tvískipt. Reyndar fúlt fyrir okkur launþegana að uppstigningardagurinn og verkalýðsdagurinn séu sama daginn.

Verkalýðsdagurinn? Hvað er það? gæti einhver spurt. Alþjóðabaráttudagur verkafólks. Dagur til heiðurs allra þeirra sem lagt hafa á sig miklar fórnir og vinnu til að ná réttindum sem okkur finnst vera sjálfsagður hlutur í dag. Vökulög, veikindaréttur, orlof, laun  og jafnrétti og ekki síst réttur til að vinna. Geta séð sér og sínum farboða.

Það hefur verið barátta nú í líðandi viku. Lúðrar þeyttir, bardagar á götum og vegum. Öskur og læti.

Samanburðurinn við baráttu launafólksins er óhagstæður fyrir þá sem berjast nú. Fyrir því sem ég held að því miður margir þeirra sem eru að taka þátt í þessum mótmælum og skrattagangi viti ekki hvað er.

Einu sinni hefur skorist í odda milli launafólks og yfirvalda. Gúttóslagurinn. Þar barðist fólk við yfirvöld um að fá vinnu. 

Held að réttast sé að vopnin verði grafin eða þeim eytt. Studdi baráttuna í upphafi. Og styð baráttu fyrir lækkun eldsneytisverðs. Sérstaklega verður að koma til móts við þá sem aka á minna mengandi eldsneyti. Díselolíu sem mengar minna en bensínið. 


Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband