Nýlendan Færeyjar.

Samanburður Færeyja og Rússlands er óhæfur. Færeyingar (eða Danir) eiga stóra efnahagslögsögu í hafinu. Gríðarstórt hafsvæði á hvern íbúa eyjanna. Mikið svæði er til veiða og nýtingu til að afla olíu eða annara hluta. Vissulega er lögsaga Rússlands stór en mikið af hafinu er þakið hafís og norðurströndin er ekki skipgeng nema að litlum hluta. 

Síðan eru Færeyjar nýlenda danska konungsveldisins svo að þeir verða að lúta flestu frá Kaupinhöfn. 


mbl.is „Við útilokum ekkert“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærir tónleikar!

Útgáfutónleikar Ljótu Hálfvitanna voru meiriháttar.

http://www.flickr.com/photos/njordur/9525347917/in/photostream

 

 


Fækkun puttalinga mikil.

Þegar ég var yngri man ég eftir því að allmargir voru á puttanum. Fingraferðalangarnir voru allmargir á vegunum í Mýrdalnum. Þeir létu ryk veganna ekki halda aftur af sér, því allir vegir voru þá malarvegir.

Með mikilli fjölgun ferðamanna á Íslandi og malbikuðum, ryklausum vegum hefur stórfækkað í þessum hóp ferðamanna. Það er ágætt því fólk í vegarkanti er í mikilli hættu í hraðri umferð á þjóðveginum. 


mbl.is Sífellt færri ferðast á puttanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggjum þetta upp á einum stað.

Ég tel ekki rétt að vera með svona flugvöll í höfuðborginni. Stór alþjóðaflugvöllur er skammt undan og með þörfum og hraðari samgöngum er ekki flókið að Keflavíkurflugvöllur verði innanlandsflugvöllur fyrir Ísland.
mbl.is Vilja völlinn áfram í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt fyrir flokkinn

Kínverskir kerfiskarlar setja stefnu á Ísland sem er land í fatla. Grímsstaðahugmynd Núbó er yfirskin yfir aðgang að höfnum norðan og austanlands. Það eykur aðgengi Kínverja að siglingaleiðinni milli Kína, Evrópu og Bandaríkjanna. 

 Nýtt útspil er að reyna kaup Íslandsbanka til að verða hluti af hagkerfi Íslands og viðskiptalanda þess. Það hjálpar Kína að komast í Evrópska haglerfið.

Allt er gert fyrir: Ein volk ein führer


mbl.is Fundaði með fulltrúum Huangs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jörð að jökli seld.

Í Mýrdalnum var Svisslendingi seld allstór jörð. Svisslendingurinn Rudi talaði um að möguleikarnir væru margir á jörðinni. Sviss er ekki hlutu ESB og því ekki efnahagsleg tengsl.
mbl.is Má setja skilyrði fyrir jarðakaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kalt bréf Festu lífeyrissjóðs

Ég lifði í von um að staða okkar öryrkjanna tæki framförum með nýrri ríkisstjórn. Að minnsta kosti voru loforð flokkanna sem mynduðu stjórnina í vor þau að nú ætti að gera róttækar breytingar til betri vegar á stöðu bótanna. Í bréfi dagsettu 16. júlí frá Festu lífeyrissjóði segir að á ársfundi 23. apríl hafi verið samþykkt 4% lækkun allra áunninna lífeyrisréttinda sjóðfélaga í sjóðnum árið 2012 og fyrr. Þetta er tilkynning sem barst mér þegar ég var svo viss um að það horfði til betri tíðar í lífeyrisgreiðslum þeirra sem eiga réttindi í Festu lífeyrissjóði.  Enn og aftur kemur í ljós hversu loforð framsóknarflokksins og sjálfstæðisflokksins voru mikill blekkingarleikur.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband