Efnilegustu Alþingismennirnir

Vilhjàlmur Bjarnason og Ragnheiður Ríkharðsdóttir eru þingmenn sjlfstæðisflokksins sen sýna mesta kjarkinn í màlinu um slit viðræðna við ESB!

 


mbl.is „Ég styð ekki þessa tillögu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnarbarátta!

Eyðing hafsins á nýju landi sést vel í Víkinni. Ótrúlegt er að sjá hvað hafið brýtur úr ströndinni sem að stórum hluta myndaðist eftir Kötlugosin 1918 og 1860 og stórgosi sem stóð í 11 mánuði 1823. Við þessu er mikilvægt að bregðast með sjóvarnargörðum frá Víkurfjöru út í hafið til að endurheimta hluta sandsins sem hefur skolast í burtu. 

Þessum framkvæmdum má líkja við það sem er gert á snjóflóðasvæðum. Garðar reistir til að hemja það sem náttúran getur gert. Með því að gera jarðgöng undir Reynisfjall fæst hluti efnis í sjóvarnargarðinn og með jarðgöngunum verður auðveldara að komast með efni í sjóvarnargarðinn úr námum í Sólheimaheiði.


mbl.is Kraftur hafsins greinilegur í Vík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímabær framkvæmd!

Þetta er almennileg framkvæmd í Víkinni. Flest hús sem hafa losnað þar hafa orðið að sumarbústöðum. Þetta verður vonandi framkvæmd til breytingar!
mbl.is Áforma að byggja tíu íbúðir í Vík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En kóparnir hér á landi á?

Fá rebbarnir og minkarnir í húsdýragarðinum í Reykjavík að borða kópana lömbin, kiðlingana og kálfana?
mbl.is Hræin fara í refi, fálka og erni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geysisferðir úr sögunni.

Hverju mun gjaldtaka á Geysissvæðinu breyta? Verður gönguleið um svæðið endurnýjuð og stígar gerðir þar sem engir eru? Verða allir hverirnir girtir af og tryggt að engin komist að þeim? Mun gjaldtaka verða til þess að landvarsla verður aukin og á svæðinu verða starfsmenn sem leiðbeina gestunum og segja frá öllu því sem spurt er um af gestum sem hafa borgað sig inn?

Verður svæði íslenska ríkisins á Geysi undanþegið gjaldtöku? 


mbl.is Geta ekki beðið eftir stjórnvöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndin var:

Leitaði og fann á mbl.is http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/09/17/gjaldeyrishoft_til_2013/: 

Alþingi samþykkti í dag lög um aðgjaldeyrishöft gildi til ársloka 2013 en ekki til 2015 eins og áður stóð til. Jafnframt var m.a. fallið frá kröfum um skilaskyldu almennings á ferðamannagjaldeyri.


mbl.is Höftin fara ekki í einu vetfangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru tengsl?

Ég horfði í gærkvöld á Kiljuna á RUV þar sem fjallað var um Jón lærða Guðmundsson og velti fyrir mér eftir þáttinn hvort tengsl hafi verið á Spánverjavígunum á Ströndum og svokölluðu Tyrkjaráni í Vestmannaeyjum og víðar um Ísland. Márarnir réðu stórum hluta Spánar í um 500 ár. Því spyr ég hvort sjómenn frá Algeirsborg hafi farið til Íslands til að hefna fyrir Spánverjana sem voru drepnir 10 árum fyrir svokallað Tyrkjarán.

Sykurlausir drykkir blekking.

Svo mikil blekking er kolsýrða vatnið með sætu og bragðefnum að neysla þeirra stefnir í óefni. Súrir dryllir með ávaxtasafa eru illir fyrir tennur og bein neytendanna. Sýran er tannskemmandi, en fólki er talin trú um að þessir svokölluðu sykurlausu drykkir séu öruggir.

Það verður til þess að þeirra er neytt ótæpilega og burstunin er talin vera óþörf. Þá sjaldan sem ég neyti svona drykkja fæ ég mér Pepsí kóla eða Kóka kóla. Auðvelt er að bregðast við sykrinum í þeim drykkjum. Illu heilli eru seldir drykkir sem eru sykurlausir en eru fullir af gervisykri sem er óholur. 

Þessi blekking verður til aukinna tanna og beinaskemmda hjá börnum og þeim sem eldri eru. Til að fá besta vatnið þarf ekki að leita langt því það er í eldhúsvaskinum og glösin uppi í skáp. 


mbl.is Vatnsdrykkirnir eyða líka glerungi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillaga skýrð sem hótun.

Er samningstillaga um veiðar fisks sem er í tímabundnu flakki inn í íslenska lögsögu hótanir? Singi og hinir framsóknarmennirnir rjúka upp til að koma með sína skýringu á því sem ESB setur fram.

Áhugavert væri að sjá tillögur Íslendinga um flökkufisktegund frá landinu.  


mbl.is Ósáttur við hótanir ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 371200

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband