26.7.2009 | 13:19
Jón í Sumarhúsum?
Ég held að Jón Bjarnason ætti að setjast að í torfkofa. Lifa á slátri og fjallagrösum. Hann gæti lýst hús sitt upp með ljósi frá lýsislampa og notað mó til að ylja sér í mestu harðindunum.
Jón Bjarnason minnir mig mikið á sögupersónuna Bjart í Sumarhúsum. Ég held að Jón eigi gríðarmargt sameiginlegt með honum Bjarti. Hugsunargangurinn er að minnsta kosti ótrúlega svipaður.
Vill fresta umsóknarferli ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þeir eru því miður margir jónarnir þessa dagana!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 26.7.2009 kl. 14:01
Komið þið sæl; Njörður síðu hafi - sem þið önnur !
Njörður frændi - Guðbjörn Tollheimtumaður og frú Sigurbjörg !
Heldur; kýs ég samfélag, fjarlægari þjóða - víða úti um heim, hverjar; margar hafa verið kúgaðar, af óþjóðum þeim, sem fyrir Evrópusambandinu fara, gott fólk.
Reynið; að fara að rumska, og sjá, að Evrópa, er ekki allur heimurinn, og; sum forystu ríkja þar, ógeðfelld mjög, í heimsvalda stefnu sinni.
Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 14:52
@Óskar það er auðveldlega hægt að finna ESB margt til foráttu. En við getum orðið hluti af bandalaginu, hluti sem hefur áhrif og ábyrgð.
Það er auðveldast að vera í stöðu Íslands í dag sem er ekki ólík stöðu púkans á fjósbitanum. Gagnrýna allt og líta yfir völlinn óábyrgur fyrir því sem þar er að gerast.
Njörður Helgason, 26.7.2009 kl. 18:17
Komið þið sæl; á ný !
Njörður minn !
Ég hygg; að þú, meðfram mörgum annarra Íslendinga, þyrftuð að skoða sóðaskap Evrópsku nýlenduherranna, víðs vegar um heim, gegnum tíðina, áður en við færum að umgangast þessa óþverra meir, en orðið er, að nokkru.
Ég á; prýðilegar fróðleiks bækur, um þrælahald Evrópu manna - Araba, og ýmissa annarra, gegnum tíðina, vildir þú kynna þér, áður en þú féllir fram á fætur þér, í lotningu meiri, fyrir Fjórða ríki Nazistanna (ESB), frændi minn sæll.
Með beztu kveðjum; sem öðrum fyrri /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 19:28
Á fornum slóðum og fornum fyrirheitum
íhaldið á fjósbitanum situr
hann, 26.7.2009 kl. 21:17
@Óskar það er hægt að draga margan sóðaskapinn upp um þjóðir hnattarins. Vissulega hefur ýmislegt ljótt gerst í Evrópu. Nú síðast á Balkanskaganum voru framin þjóðarmorð.
En það þarf ekki að fara langt til að finna skammarleg verk og svíðingsleg sem setja þjóðina í hlekki: Sjáðu hér
Njörður Helgason, 26.7.2009 kl. 21:36
Það sem þú og allir eiga að sjá: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/07/26/skoda_lanveitingar_landsbanka/
Njörður Helgason, 26.7.2009 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.