Nýtilegt og afmarkað.

Það er til frekari bóta að reyna ræktun beykisins hér á landi á en þegar farið var að sá lúpínunni um allt land. Hún fer með sáningu grimmt um allt í dag og vandræðin við að uppræta hana eru óskapleg.
Ræktun beykisins ætti að geta verið afmörkuð. Einhvern vegin tel ég að það sái sér ekki um allt land eins og lúpínan hefur gert.
mbl.is Franskan skóg hingað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Lúpínan er ágæt landnámsjurt sem þó þarf að nota með ákveðin markmið í huga. Ljóst er að hún getur gert kraftaverk við að bæta lélegu landi í frjósamt á mjög hagkvæman og einfaldan hátt. En hún hefur sín takmörg eins og hún þrífst illa þar sem lítil úrkoma er, vindasamt og mjög erfiðar aðstæður. Almennt séð getur hún ekki nema þraukað þegar komið er í 250 metra yfir sjávarmáli. Þetta sést t.d. á Hólasandi á leiðinni milli Húsavíkur og Mývatns þar sem félgagsskapurinn Húsgull vill endurheimta birkiskóg með aðstoð lúpínu.

Þessi duglega jurt á sér marga aðdáendur einkum meðal skógarvina en einnig andstæðinga sem líta á hana með tortryggni og vilja jafn vel útrýma henni. Auðvitað á að nota lúpínuna sem best og mest en með ákveðnum markmiðum við að klæða landið skógi.

Góðar stundir!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 18.10.2011 kl. 22:58

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Varðandi beykið þá mætti kíkja á allmikinn runna sem vex sunnan við gamla Miðbæjarskólann í Reykjavík. Þessi runni sem er um 3 metrar á hæð er beyki sem að öllum líkindum kemur upprunalega frá Danmörku. Venjulega vex beyki beint upp og teygir krónuna eins hátt og mögulegt er. Þetta eintak hefur hins vegar tekið þá stefnu að vaxa jafnvel jafnmikið niður á við sem upp á við.

Þetta er sögulegt tré, barn síns tíma. Skógrækt er flókið fyrirbæri rétt eins og viðhorfin til skógræktar. Annars er ekkert nema gott um þetta að segja. Auðvitað ætti beyki upprunnið í frönsku Alpafjöllunum að geta vaxið hér rétt eins og evrópulerkið og fjallahlynurinn sem Íslendingar hafa nefnt garðhlyn en er Bergahorn á þýsku. Hlynur nefnist mapple á ensku og er þjóðartákn Kanada.

Góðar stundir.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 18.10.2011 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.

Höfundur

Njörður Helgason
Njörður Helgason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3122
  • IMG_3283
  • IMG_3266
  • IMG_3268
  • IMG_3257

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband