31.5.2016 | 23:25
Lundabúð í steininn
Er ekki tilvalið að setja stórmarkað lundabúða í Skólavörðusteininum
Elsta fangelsi landsins lokað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2016 | 09:39
Val fólks er Guðni Th.
Ánægjulegt er að sjá að ekki er bakslag á fylgi Guðna Th. eftir sýndarmennsku Davíðs sem voru undir stjórn framsóknarmannsins Björns Inga á Eyjunni.
Davíð gerði sitt besta að fiska í gruggugu vatni til að keyra einn mótframbjóðanda niður. Orð Davíðs keyrðu hann sjálfan niður og gerðu honum ekkert nema óleik.
Guðni með rúmlega 60% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2016 | 17:01
Davíð á útleið!
Guðni Th er með þetta, Andri Snær á upleið og nálgast annað sætið hratt. Von mín er að Andri snær verði númer tvö í forsetakosningunum í júní!
Guðni með 59% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2016 | 21:37
Endurreisnin!
Sigmundur Davíð biður þjóðina ekki fyrirgefningar á verkum sínum sem forsætisráðherra. Heldur snýr hann til baka á Alþingi og er svo viss um að allir hans sandalar séu gleymdir.
SDG. hefur stuðning framsóknarflokksins með í endurreisninni
Sigmundur tekur sæti á þingi á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2016 | 11:06
Guðni Th. er góður kostur til forsetaembættisins.
Í embætti forseta Íslands sem stórum hluta þjóðarinnar skiptir máli er mikilvægt að aðili veljist til embættisins sem hefur þekkingu á embættinu sem hann sælist eftir að taka við.
Í forsetakosningunum sem verða í sumar þegar sól er hæðst á lofti skiptir miklu að við veljum ungann aðila sem er reiðubúinn að takast á við embætti forseta sem hann þekkir vel.
Íslensk þjóð á kost á góðum aðila til embættisins. Hann heitir Guðni Th. Jóhannesson, hefur yfirburðaþekkingu á sögunni og þeim forsetum sem gengt hafa embættinu frá því Ísland varð frjálst ríki.
Finnst forsetinn skipta máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.5.2016 | 10:33
Davíð rembist í andstöðunni.
Af heimasíðu Guðna Th.
:Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands verður aðeins breytt með því að tvö þing samþykki breytingarnar, með kosningum á milli. Fólkið í landinu þarf því að kjósa sér fulltrúa sem styðja þær breytingar. Þá gildir einu hvort um er að ræða tillögur stjórnlagaráðs, sem meirihluti kjósenda studdi í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu 2012, eða ýmsar tillögur um málamiðlanir og áfangasigra sem sumir félagar stjórnlagaráðs hafa stutt, ásamt öðrum. Auk þess á forseti að beita sér með beinum hætti fyrir því að í stjórnarskrá komi ákvæði um þann rétt tilskilins fjölda kjósenda að krefjast þjóðaratkvæðis um umdeild mál. Sömuleiðis ætti forseti að hvetja til þess að ákvæði í stjórnarskrá um völd og verksvið hans verði gerð skýrari en þau eru nú.
Segir Guðna vilja kollvarpa stjórnarskránni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2016 | 23:38
Kjósendurnir voru allir á Grensársveginum
72% þeirra sem koma til með að kjósa Davíð í forsetakosningunum voru þarna í dag!
Fullt út úr dyrum hjá Davíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2016 | 08:18
Spillingin eykur fylgið.
Það eflir greinilega fylgi sjálfstæðisflokksins þegar enn meira kemur í ljós af spillingu formannsins og samstarfsflokksins í ríkisstjórninni. Greinilega vex fylgi flokksins við nýjar fréttir af Engeyingunum og það dregur ekki úr vinsældum flokksins að fyrrum landsfaðirinn Davíð Oddsson er í vonlausri baráttu um að verða forseti.
Sjálfstæðiflokkurinn með 31,1% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2016 | 22:12
Risaeðlurnar endurlífgaðar.
Fornleifafræðingar hafa haft vinnu af því að finna og skoða sögulega hluti. Misjafnt er hversu langt aftur í tímann hefur verið leitað, nú hafa fornaleifafræðingar dottið um risaeðlur sem taldar voru útdauðar, en hafa nú birst aftur í sameiningu vegna forsetakosninga í júní.
Báðar telja þessar forneskjur að þeir eigi erindi til bjargar íslenskri þjóð vegna þess að íslensk þjóð geti ekki flust í framtíðina nema að þær hafi stjórn á þjóðinni á nýjum tímum.
Sárt er að sjáviðhorf Davíðs Oddssonar og blóðbróðir hans Ólafs Ragnars Grímssonar til þess að íslensk þjóð fari fram á veginn án þess að þeir séu í káetunni.
Í þessu embætti eru menn einir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2016 | 10:41
Besti kosturinn er Guðni Th.
Barátta Guðna Th. hefst í dag með fundi í Salnum í Kópavogi. Með honum hefst formleg barátta Guðna fyrir embætti forseta Íslands.
Með framboði Guðna eiga Íslendingar góðann kost á manni sem ljúft er að kjósa til embættis forseta Íslands. Við höfum ekki haft betri kost síðan við kusum Vigdísi!
Ólafur með 45% en Guðni 38% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Um bloggið
Njörður Helgason. Húsasmíðameistari grunnskóla og framhaldsskólakennari.
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
- Myndirnar mínar á Flickr Samansafn valinna mynda til sýnis fyrir alla
- Twitter síðan mín Skoðanir í stuttu máli
Veðurviti
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 370464
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar